Þetta er ein af þessum færslum sem ég nenni ekki að upphugsa góða fyrirsögn á.

Jæja þá er maður komin aftur eftir langan og strangan túr.  Punkturinn var settur yfir i-ið þegar þurfti tvær tilraunir til að lenda í Keflavík.  Helv#&&## rokrassgat alltaf hreint.  Ferðasagan kemur síðar ef ég dett í gírinn en það verður nú að segjast að eftir 4 daga af umræðum um nautgripi og pólitík var ekki laust við að að mér væri farið að sækja örlítið eirðarleysi og löngun til að tala um eitthvað annað, næstum því hvað sem er annað.  

Átti góða daga hjá mæðgunum í Oslo.  Ingunn gerðist shopping/tour guide og við Sigga kíktum út á lífið.  Kærar þakkir fyrir skemmtilega helgi mæðgur. 

Annars er kvefið svona heldur á undanhaldi.  Held ég geri aðra tilraun með kjúklingasúpuna í kvöld.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bíð spennt eftir ferðasögu.....og fórst þú í búðir........;);)

Hefur örugglega verið mikið stuð á ykkur skvísunum:)

Já kvefið er sko á undanhaldi hér.........enda mikið búið að leggja á sig að rífa það burt.......bæði með lýsi, c- vítamín og te sem og að leyfa hitatoppum að vinna á því.

Knúss frá eyjum

Kolla frænka (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband