Home sweet home

Jæja, hvað gerir svo kornung einhleyp kona á laugardagskvöldi.  Jú, mikið rétt, hún situr undir sæng og bloggar.  Það einasta sem ég get sagt mér til afsökunar er það að ég er heima á Svertingsstöðum, búin að framkvæma, á einum degi, meira líkamlegt erfiði en öll samanlögð áreynsla síðasta mánaðar OG ég er stútfull af mat sem mamma hefur samviskusamlega keppst við að bera á borð fyrir mig.  Síðan ég koma á fimmtudagskvöld hefur verið tekin sprengidagur, þorrablót, bolludagur og ekta sunnudagssteik í eldhúsinu á Svertingsstöðum því mamma veit, sem er, að allar líkur eru á að ég sinni engum þessara merkisdaga, sem skyldi, þegar þá ber að garði.  Hörður vill að ég komi endilega sem oftast heim Smile

Annars var ljúft að komast norður.  Að venju gat maður slökkt á rúðuþurrkunum norðanmegin Holtavörðuheiðar.  Stoppað einhversstaðar á leiðinni til að teygja úr sér og eitt augnablik finnst manni að eitthvað sé ekki alveg eins og það á að vera.  Svo hugsar maður sig um eitt andartak og áttar sig.  Það er ekkert ROK.  Maður andar léttar, slappar af í öxlunum, dregur andann djúpt og heimurinn er einhvernvegin allur miklu bjartari (enda ekki rigning sem byrgir manni sýn)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég fæ bara heimthrá thegar ég les thetta!

kvedjur úr óeirdaborginni,

sd 

Sigga Dóra (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 11:33

2 identicon

Sit líka heima hjá ma og pa í Mýrinni og leik mér í tölvunni.  Rólegheita helgi, veislur og huggulegheit.  Þvílík afslöppun.  Eiginlega kærkomin.  Njóttu letinnar og framkvæmdaleysisins eina kvöldstund.

kolla (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 13:20

3 identicon

Það verður ekki af þér skafið að þú ert hreinræktaður Norðlendingur.   Mér dettur í hug  vísa sem ég lærði fyrir margt löngu, það er að vísu sumarvísa en hún getur átt við hvenær sem er  a.m.k. fyrir fólk sem er  þessu marki brennt.  Létt er geðið liðið stríð/ lífið enginn vandi./ Nú er síblíð sólskinstíð /sumar  á Norðurlandi.   Blessuð borðaðu eins og þú getur.

aG (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 15:14

4 Smámynd: Kolbrún Kolbeinsdóttir

stórfín vísa

Kolbrún Kolbeinsdóttir, 20.2.2008 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 391

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband