Nóttin, nóttin

Ég er næturdýr, það er sko alveg á hreinu.  Alveg er það nú dæmalaust frábært að rölta heim úr fjárhúsunum á kyrri vornótt.  Nóttin skiptist nefnilega í nokkra fasa á þessum árstíma.  Upp úr miðnætti fer að hægjast um og rökkva, engu að síður heyrast ennþá svolítil náttúruhljóð svo sem stöku fugl og svo auðvitað jarmið í ánum og lömbunum.  Upp milli tvö og fjögur ríkir alger kyrrð, eins og allur heimurinn hafi sammælst um að nú sé hvíldartími.  Fuglar og ær eru lögst til hvílu enda mið nótt.  Upp úr fjögur fer svo allt að lifna við, það fer að birta, fuglarnir fara að láta á sér kræla og smá saman fer að birta aftur.  Það er hins vegar alveg sama hvenær nætur maður er á ferðinni, alltaf er þessi dásamlegi friður og kyrrð eins og maður sé algerlega einn í heiminum

Eins og ég hef áður sagt þá er algert sáluhjálparatriði að komast í sauðburð.  Alveg jafn mikilvægt og að fara í göngur á haustin og upplifa það að vera einhversstaðar einn með hest, hund og nokkrar skjátur.  Líklega er ég ekki bara næturdýr heldur líka hálfgerður einfari

yfir og út úr Eyjafirðinum

GEH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einfari en ekki einsDÆMI

Hefur þú komið í kríuvarp á lögboðnum kyrrðartíma? - Svona gerist líka rétt áður en rigningin kemur eftir langvarandi þurrk (sama hvað klukkan er).

Þeir sem upplifað hafa almyrkva sólar, segja að nákvæmlega þetta gerist þá - skepnur ganga til hvílu og allt verður hljótt

MAGNAÐ og hér er LOGN (langvarandi miðað við allt og allt

e (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 09:47

2 identicon

Man ekki höfund en vísan segir það sem þarf.

Langt til veggja heiðið hátt

hugann eggja björtu sporin.

Hefði ég tveggja manna mátt

myndi ég leggjast út á vorin. 

aG (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 14:06

3 identicon

Ég er að klúðra, sá það ekki fyrr en um leið og ég sendi. Viltu leiðrétta línu tvö í vísunni. Á að vera "hugann eggja BRÖTTU sporin.

Ef þú finnur tíma um helgina ættirðu að kíkja aðeins við í Rauðum. Rússarinir eru komnir. 

aG (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband