Á aðventunni

Ó já.  Desember hreinlega æðir áfram og undirrituð algerlega að tapa sér í jólastemningu og það er svona skemmtileg jólastemning með kertaljósi, smákökubakstri og jólaskrauti.  Ekkert bölvað stress með jólagjafainnkaupum og jólakortaskrifum.  Fátt finnst mér leiðinlegra en að skrifa jólakort og er þetta líklega í einasta skiptið á ári sem ég get hugsanlega tekið undir það að það sé sniðugt að eiga börn svo hægt sé að smella af þeim mynd, skella í umslag og kalla jólakort. 

Ég hef reyndar íhugað að taka mynd af Litlu-Jörp, Skjónu, Botnu eða Surtlu til að senda til vina og vandamanna ásamt jólakveðju.  Botna og Surtla reyndar fremur uppteknar á jólaföstunni eins og sauðfjár er siður en Litla-Jörp og Skjóna sennilega ekki mikið bókaðar og tækju sig ábyggilega ágætleg út t.d með jólasveinahúfu eða englavængi.  Vandamálið er hins vegar að ég er hér og þær eru þar (fyrir norðan) en hugmyndin engu að síður góð að mínu mati.  Bara spurning um útfærslu.

Á reyndar í fórum mínum mynd af þeim Freyju og Nótu gömlu sem auðveldlega væri hægt að fótósjoppa í svolítinn jólafíling ef maður vildi.  Freyja reyndar á beit núna á hinum eilífu veiðilendum en Nóta ennþá sprell-alive og hér koma þær með aðventukveðju Tounge

freyja

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég get ekki betur séð en myndin sem er á síðunni af þér og litlu Jörp geti dugað sem ágætis jólakort svo má bara prenta kveðju frá Skjónu  með og þá er þetta komið, annars allt í besta kveðja Mæja

mæja (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 15:36

2 identicon

Sammála Mæju um ágæti myndarinnar hér  en svo á ég myndvinnsluforrit sem mætti nota ef þú vilt t.d. vera með húfu (og vængi - jafnvel geislabaug) á þessari mynd (í korti)

múhahahah

e (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband