Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Sveita "stúlkunar" draumur

Þetta var nokkuð massív vika, mánudag til fimmtudag stóð Búnaðarþing yfir og í gær föstudag var nautgriparæktarfundur í Þingborg.  Þegar ég skreið inn úr dyrunum heima hjá mér klukkan hálf átta í gærkveldi leið mér eins og ég hefði verið á stöðugu ferðalagi síðan á mánudagsmorgun og að sá mánudagsmorgun hefði að minnsta kosti verið fyrir hálfum mánuði síðar.  Að sjálfsögðu hjálpaði veðurfarið ekki til við öll þessi ferðalög og það skal segjast alveg eins og er að þær Litla-Jörp og Bleik hafa verið nokkuð afskiptar, af minni hálfu, þessa viku.  En þær virtust nú vera sæmilega hressar með að þegar ég leit til þeirra í gærkveldi.  En nú er friðurinn úti og stefnt á reiðtúr í dag, það er meira að segja sæmilegt veður, aldrei þessu vant. 

Nú veit ég að ákveðin vinkona mín hérna á staðnum hugsar sitt því ég er enn og aftur að hallmæla veðrinu á Hvanneyri Wink.  Verð samt að gera það reglulega bara til að fá útrás fyrir þessar frústarasjónir. 

Ég fékk hræðilega martröð í nótt, mig dreymdi að það væri há-sauðburður en ég hafði, sökum vinnu, ekki nokkurn einasta tíma til að komast í fjárhúsin Crying sama hvað ég reyndi.  Er öll þessi vinna farin að leggjast á sálina á mér??????????  Maður spyr sig.  Ég er því nú þegar farin að hugsa fyrir sauðburði, enda algerlega nauðsynlegt fyrir geðheilsuna að ná honum. 

Set af því tilefni hér myndir af einu af björgunarafrekum fyrri sauðburða.  Litla þrílembingnum henni Spertu sem eitthvað hafði orðið undir í lífsbaráttunni í móðurkviði. 

22-Sperta nýfædd og líflítil Nýfædd og frekar líflítil   

 23-búið að vefja hana inn Komin á hitapokann, undir ofninn.

24-Er að vakna til lífsins Heldur er nú upplitið að batna

26-gólfið er sleipt  Fyrstu skrefin í heiminum geta verið erfið

27-Komin á fót  En þetta lærist þó fljótt

28-Búiðað venja undir Og svo var ekki verra að fá nýja mömmu og STÓRA bróður

Yfir og út úr sauðburðarhugleiðingum á eyrinni

Sveitavargurinn

 


ZZZZZZZZZZZZZZZZ

Ég punkteraði algerlega þegar ég kom heim úr vinnunni.  Vildi ekkert fremur en að það væri föstudagur í dag og þar með væri ég minn eigin herra á morgun, því er þó ekki að heilsa.  Þarf að þrauka einn dag enn, og reyndar nokkra klukkutíma til viðbótar áður en ég fer að sofa í kvöld.

Yfir og út af eyrinni

GEH


Þolinmæði þrautir vinnur allar - eða hvað????

O jæja, ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að slá til með að opna rauðvínsflöskuna eða ekki.  Hvort ég eigi að nenna að fara að hlaupa aðeins eða ekki.  Hvort ég eigi að nenna að vinna í kvöld eða ekki.  Hvort ég eigi kannski bara að glápa á imbann eða ekki. 

Kannski ég geri þetta bara allt saman.  Fari og hlaupi - opni síðan rauðvínið og taki eins og eitt glas yfir tölvunni OG hafi opið fyrir sjónvarpið á meðan.  Ég er nefnilega kona og get gert alla þessa hluti í einu og meira til Cool.  

Ég er líka ákaflega hógvær eins og allir vita

Já ég er hlaðin góðum kostum - multifunctional eins og sagt er á erlendum tungumálum.  En það eru nú flestar konur.  

Því miður er þolinmæði ekki einn af þessum góðu kostum.  Hana hef ég því miður af skornum skammti og  það litla sem ég átti notaði ég upp til agna í dag.  Morgundagurinn er því fyrirkvíðanlegur þar sem ég geri ráð fyrir að þá gæti þolinmæði gæti komið sér ákaflega vel Frown

yfir og út af eyrinni

GEH 


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 407

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband