Færsluflokkur: Bloggar

Tour de Eyjafjörður

Ég keyrði í vinnuna í dag.  Því fengu smáfuglarnir ekki að njóta íðilfagurrar söngraddar minnar í morgun og gátu sofið frameftir.  
Annars varð ég fyrir merkilegri upplifun á heimleiðinni í gær.  Ég fór fram úr bíl, nánar tiltekið rauðri Toyotu Corollu.  Hér ítreka ég enn og aftur að ég ferðaðist um á reiðhjóli í gær.   Ég vildi að ég gæti látið fylgja sögunni að ástæðan fyrir þessum framúrakstri væri afkastageta mín á reiðhjólinu, en svo er því miður ekki.  Engu að síður fann ég örlítð til mín. svona smá Tour de France fílingur, nú eða Formúla 1.  Mér fannst ég sýna mikil tilþrif í þessum framúrakstri, skaust framúr á beina kaflanum (fyrir neðan Krókstaði fyrir  þá sem til þekkja).  
Maðurinn á Córollunni sýndi gríðarlega einbeitni við aksturinn þar sem hann geystist áfram á að minnsta kosti 15-20 km/klst.  Ég var að hugsa um að banka á hliðarrúðuna hjá honum.  Benda honum á að á þessum vegi væri 90 km hámarkshraði, en ég hætti við.  Mér leist þannig á manninn að best væri að trufla hann ekki við aksturinn, hann hélt sig þó alla veganna á sínum vegarhelmingi og meðan hann rígheldi svona í stýrið þá væri lítil hætta á að hann færi  að rása útaf honum.  Vegurinn lá þráðbeinn framundan og engin þörf fyrir hann að taka neinar beygjur í bráð, líklega best að láta kyrrt liggja.  Skemmst er frá því að segja að ég stakk manninn af.  En mikið óskaplega óskaði ég þess heitt að ég hefði flautu á hjólinu, ég hefði svo gjarnan viljað senda honum smá flaut í kveðjuskyni


Stórsmellir

Ég ákvað að henda inn einni færslu svona áður en ég held heim á leið svo ég skellti "Ljótu Hálfvitunum" á "fóninn" til að ná upp örlítið líflegri stemningu efitir daglangar spögulasjónir um haplotýpur, leturstærðir, töflur, myndir og fleira spennandi.  Það var nefnilega þannig að í þeirri viðleytni minni til að gera eitthvað skemmtilegt, þ.e eitthvað annað en að vinna og sofa, þá fékk ég Konna bróðir og Þorbjörgu með mér í Ýdali síðasta laugadag á tónleika hjá Ljótu Hálfvitunum.  Skemmst er frá því að segja að Hálfvitarnir heilluðu mig gersamlega upp úr skónum, eins einkennilega eins og það nú hljómar, og ég fjárfesti í tónsmíðunum á staðnum.    Held bar að það hafi ekki verið svo slæm fjárfesting þegar allt kemur til alls.  L'iklega blundar einhver Íri í mér þar sem allt sem eitthvað mynnir á írska þjóðlagatónlist veldur því að ég fæ fiðring í tærnar og fyllist óstjórnlegri löngun til að syngja.  Því var það svo að í morgun fældi ég samviskusamlega up hvern einasta fugl sem á vegi mínum varð, þar sem ég söng ég hástöfum "Mamma þú djöflast í mér umtalsvert" og svo framvegis, alla leiðina Svertingsstaðir - Akureyri - á hjóli.  Sennilega gott að fáir eru á ferli svona í morgunsárið.  Spurning hvaða stórsmell ég á að velja fyrir heimleiðina.  Kannski eitthvað sígilt eins og t.d "Wiskey in the jar".  


Tímabærir flutningar

Eins og glöggir netnotendur og lesendur Litfríðar hafa tekið eftir þá hef ég lagst í búferlaflutninga.  Líklegast er þetta angi af þeirri tilhneigingu minni að dveljast ekki mjög lengi á hverjum stað og líklegast er vera mín á blog.central.is nokkurskonar því þar hef ég verið mun lengur en nokkur búseta hefur enst hjá mér um árabil.  Því fannst mér tími til komin að flytja mig um set.  Vonandi verðið þið dugleg að heimsækja mig hingað og endilega skiljið eftir ykkur spor

Kveðja í bili

GEH


Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 414

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband