í morgunsárið

Ohhh hvað ég var eitthvað andlaus í morgun.  Eiginlega bara hálf úldin og til að bæta gráu ofan á svart þá tókst einhverjum að klúðra kaffilöguninni hér í morgun.  Skil reyndar ekki hvernig það er hægt þegar það eina sem þú þarft að gera er að opna poka með fyrirfram ákveðnu magni af kaffi og hella vatni á vélina úr könnu sem tekur nákvæmlega það magn af vatni sem til þarf.  Huxa að ég fái mér samt annan bolla svona til að ná réttu hressileikastigi svona í morgunsárið.  Kaffi og bjór eru tvímælalaust með heimsins bestu uppfinningum

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Sæl frænka litla -- sem ég hef aldrei séð en samt vitað af.

Sorglegt hvernig fór með kaffið þitt. Vildi ég gæti boðið þér mitt sem er bara alveg ágætt, takk fyrir. Passaðu þig samt á bjórnum, hann hefur stundum reynst Þúfnavallaættinni skeinuhættur. Það er ekki allt gull sem glóir né gott sem rennur.

Renndi í gegnum eldri blogg þín -- forvitinn um greinina þína sem þú minnist á. Hvað fyrir grein?

Góð kveðja

Sigurður Hreiðar, 24.7.2007 kl. 09:25

2 identicon

Ó, já! Kaffibolli í morgunsárið er ómissandi, ef restin af deginum á að vera þolanleg... Þetta með bjórinn hef ég hinsvegar aldrei skilið.... Maður gerir ekkert annað en að ropa og míga af honum ;)

Þórey (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 13:53

3 Smámynd: Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir

Maður þarf nú að skila flestum vökva sem maður innbyrðir hvort sem það er bjór eða annað.  Bjórinn er hins vegar best að innbyrða í lok dags í hæfilegu magni sem fyrir flesta (þ.m.t sjálfan mig) er umtalsvert minna en innbyrt kaffimagn.  Hæfilegu magni af bjór sem og öðrum drykkjum fylgja engin óhófleg þvaglát eða bakflæði lofts

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, 24.7.2007 kl. 14:13

4 identicon

Smáábending. Öruggt ráð til að eyðileggja kaffiuppáhellingu er að gleyma að setja kranastautinn ofan í könnuna áður en kveikt er á henni. Skrítið en svona er þetta.  G. Hr. senior

gunnfríður Hreiðarsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 18:02

5 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Gaman að sjá að G. Hr. senior er komin til sögunnar. Kannski komin með netfang líka, G. Hr.?

Gunnfríður Elín: þessi tækni hefur orðið til að koma á samskiptum þar sem fjarlægðir og tímaskortur hafa komið í veg fyrir eða skorið á kynni og viðhald þeirra. Kannski skemmtilegasti parturinn af blogginu.

Mér finnst áhugavert þetta doktorsverkefni þitt, þó ég sé ekki hestamaður og kunni ekki að sitja hest. Átti samt einu sinni tvo góða vini af kyni hesta -- eða kannski var það ekki nema einn. Sambandið við hinn var í rauninni alltaf hálfgerð fjandvinátta, enda var hann stirfinn í skapi og lítið fyrir að láta einhvern strákpatta stjórna sér, en þetta var í þá daga þegar maður lagði aktýgi á hest og spennti þá fyrir eitthvert tæki, einn eða tvo. Aldrei steig hann samt ofan á mig. -- En -- gefðu mér signal þegar ég get lesið greinarnar þínar, mér finnst þetta forvitnilegt.

Vona þér gangi betur með kaffið í fyrramálið.

Sigurður Hreiðar, 24.7.2007 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 399

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband