Svellkaldur

Mér skilst að á landinu geysi óveður.  Merkilegt nokk þá varð ég ekki vör við neitt óveður á leið minni í borg óttans í morgun, smá kóf svona á stöku stað.  Fanski skiptineminn tók þó myndir í gríð og erg út um framrúðuna.  Ég dáist að þrautseigju mannsins sem alltaf fer á fætur á morgnana og út á hringtorg í þeirri von að einhver komi og taki hann upp í Woundering.  Sem og ég gerði, gat ekki látið manngreyið húka þarna í fjúkinu, þó ég væri nú meira stemmd til að vera ein með sjálfri mér og syngja hástöfum með útvarpinu Cool.   Veit ekki alveg hverjum datt í hug að það væri góð hugmynd að staðsetja skiptinema, sem sæktir tíma í HÍ, á Hvanneyri Errm.  En hvað veit ég svo sem.  Kannski flokkast þetta sem partur af upplifuninni. 

Ísland best í heimi!!!!

Reyndar komst ég að því að Norðmenn eru allmennt haldnir þeim ranghugmyndum að Noregur sé best í heimi. 

Hafa þeir aldrei séð Thule auglýsingarnar???? Grin

yfir og út úr Höllinni

GEH

P.S púkinn vill ekki kannast við orðið "nokk" en býður mér meðal annars upp á valkostinn fokk í staðinn, er allt á leið til andskotans eða hvað Shocking

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott  að vita þig heima á þínum snjóskafli aftur og kveflausa. Mér finnst nú Norðmenn haldnir ýmsum ranghugmyndum um eigið ágæti  bæði landfræðilega og huglægt, sorry.  Ég horfi með leyndri skelfingu til þess að þurfa að dúsa í þvísa landi  í HEILAN  mánuð á næstunni. En það sem verður að vera viljugur skal hver bera. Ojamm. Kv aG

aG (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 10:36

2 identicon

Hæ Gunnfríður mín!

Takk fyrir að skrifa á síðuna mína, gaman að heyra frá þér. Hafðu það gott á Hvanneyrinni! :o)

 Kveðja frá Sólheimum í Grímsnesi

Vigdís.

Vigdís (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 21:01

3 identicon

Sæl Gunnfríður hehe já ég er hrædd um að við séum á hraðri leið til andskotans þegar það er farið að bjóða uppá þetta orð í innsláttarvörn á íslandi hehe ;) en já bara að kvitta héðan úr skaflinum á svertingsstöðum 2 hehe allt á kafi en bara hérna heima á hlaði ;).  Sjáumst svo hressar á þorrablóti aðra helgi ;).

kv Guðlaug Sigríður

Guðlaug Sigríður (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 399

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband