Að sofa eða ekki sofa

Og ég held áfram að vakna um miðjar nætur.  Í gær var það kl 5 og í morgun kl rúmlega 4.  Ég fór út í göngutúr í gær en ákvað að fara ekki fet í morgun þar sem ég hafið lagt að baki umtalsvert marga kílómetra eftir vinnu í gær á hjóli í mígandi rigningu og talsverðum mótvindi.  Annars held ég að það væri bara ekki svo vitlaust að notfæra sér þessi óvæntu minni svefnþörf til að gera ýmislegt sem ég annars ekki kemst yfir að gera.  Ég hef hvort eða er alltaf verið að býsnast yfir þessum tíma sem maður eyðir í að sofa. 

Annars er það helst í fréttum að sauðburður hófst hjá mér í dag og er þar með hálfnaður.  Afrakstur dagsins ku vera hvítur hrútur og svarblesótt, sokkótt gimbur.  Kollótt metfé að sjálfsögðu undan henni Botnu minni (a.k.a Gjöf) og sæðishrútnum Lykli.  Nú svo við höldum okkur við fréttir af búfénaði þá er Litla Jörp öll að braggast, sárið nær gróið og hún að verða óhölt. 

Annars dauðlangar mig í bjór en ísskápurinn er tómur, líklega verður að bruna í Borgarnes á morgun og kaupa inn eitt og annað sem skortir á þessu heimili.

yfir og út

GEH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég borgarbarnið,hefir í mörg ár langað að flytja úr sollinum í Reykjavík,vonandi kemur að því.Sem gutti var maður mikið í sveit og það að hafa verið í sveit er fastast af öllu í minningu manns,um leið og maður er kominn hálftíma frá Reykjavík,þá er einsog að það komi önnur sál inní mann,þægileg sál. Íslensk náttúra kemur sífellt á óvart,gangi ykkur mér ókunnuga fólk allt í haginn .Hvergi er maður í eins mikilli snertingu við land sitt en í sveitinni.Sigmundarstaðir í Borgarfirði,var einn af mínum sveitastöðum,,,,,,,möööörg ár síðan.

jensen (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 22:19

2 identicon

Þegar þú segir Kollótt, meinarðu þá ekki örugglega Kollu-ótt?  Held þetta hljóti að vera stafsetninarvilla

Kolla (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband