Verð nú eiginlega að kommenta á þetta

Ég átti nefnilega mjög svo ákafar umræður við grísk-kaþólskt fyrrverandi viðhengi um akkúrat þetta.  Ég myndi nú ekki ganga svo langt að segja að þetta hafi verið rökræður því í rökræðum verða menn að notast við rök. 

Ég reyndi af miklum móð að sýna fram á að þetta væru algerlega fáránlegar dillur enda vita allir sem mig þekkja að í mínum huga eru trúarlegarforsendur tómt píp.  Ég náði bara einfaldlega ekki að höndla það konsept að einhverjum dytti í hug að taka þetta alvarlega og hvað þá vel menntaður tiltölulega frjálslyndur ungur maður og reyndar einhverjar nokkrar milljónir annara trúbræðra og systra hans. 

Aukin heldur þoli ég bara ekki svona "af því bara" rök sérstaklega ekki þegar þau fara saman við ákaflega mikin tvískinnungshátt svo ég minnti hann kurteislega á þá staðreynd að hann byggi nú í óvígðri sambúð með ungri  konu sem væri ekki bara af lútersku bergi brotin heldur væri algerlega trúlaus,  og það hlyti að vera að minsta kosti jafn slæmt og ef einhver vesalings kona tæki upp á því að klífa fjöll í Grikklandi (svona til útskýringar komst ég að því á ferð minni um hið rómversk-kaþólska land Rúmeníu að það að vera lútherstrúar jaðrar við heiðingsskap).

Ég benti honum einnig á það að ég gæti vel hugsað mér að ganga á helvítis fjallið ef ég væri í nágreninu (reyndar var ég stödd í Aþenu sem er reyndar nær en maður er oftast staddur).  Hann horfið á mig eins og ég væri snar sturluð manneskja.  Mig langaði mest að staðfesta þá kenningu hans með því að berja hann í hausinn.  Angry 

Er að spá í að slá á þráðin til hans núna og athuga hvort heimsendir sé í nánd Devil


mbl.is Þúsund ára gamalt kvennabann brotið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahah bid ad heilsa Razvan og segdu honum ad tu og frænka tin (semsagt eg) seu mikid ad hugsa um goda fjallgøngu a fjallid tad arna....og frekar tvisvar en einu sinni!!!!

Sigga frænka (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 01:28

2 identicon

Ég skal koma með - ef þú leggur á fjallið góða - ekki spurning. Fór einmitt að velta fyrir mér þessum göngutúr, þegar ég las fréttina

e (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 13:00

3 Smámynd: Arnar Hólm Ármannsson

hahahah sælar:) gaman að þessu

Arnar Hólm Ármannsson, 2.6.2008 kl. 21:32

4 identicon

Hvað voru þessar kellingar að þvælast erindisleysu upp á fjall.  Voru þær að leita að kindun eða hvað!  Held þeim hefði verið nær að halda sig heima í eldhúsinu.

Larfurinn (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband