Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Svellkaldur

Mér skilst að á landinu geysi óveður.  Merkilegt nokk þá varð ég ekki vör við neitt óveður á leið minni í borg óttans í morgun, smá kóf svona á stöku stað.  Fanski skiptineminn tók þó myndir í gríð og erg út um framrúðuna.  Ég dáist að þrautseigju mannsins sem alltaf fer á fætur á morgnana og út á hringtorg í þeirri von að einhver komi og taki hann upp í Woundering.  Sem og ég gerði, gat ekki látið manngreyið húka þarna í fjúkinu, þó ég væri nú meira stemmd til að vera ein með sjálfri mér og syngja hástöfum með útvarpinu Cool.   Veit ekki alveg hverjum datt í hug að það væri góð hugmynd að staðsetja skiptinema, sem sæktir tíma í HÍ, á Hvanneyri Errm.  En hvað veit ég svo sem.  Kannski flokkast þetta sem partur af upplifuninni. 

Ísland best í heimi!!!!

Reyndar komst ég að því að Norðmenn eru allmennt haldnir þeim ranghugmyndum að Noregur sé best í heimi. 

Hafa þeir aldrei séð Thule auglýsingarnar???? Grin

yfir og út úr Höllinni

GEH

P.S púkinn vill ekki kannast við orðið "nokk" en býður mér meðal annars upp á valkostinn fokk í staðinn, er allt á leið til andskotans eða hvað Shocking

 

 


Heitur sýrður rjómi .... nammi namm

Jæja jæja, líklega er komin tími á ýtarlegri færslu eftir nokkurra daga hlé.   Það er kannski best að byrja á því að svara nokkrum spurningum: 

Já Kolla ég fór og verslaði!!!!!! Löngunin til þess að vera sæmilega til fara varð verslunarfóbíunni yfirsterkari og með dyggilegri aðstoð Ingunnar sem vissi hvar átti að finna alla skapaða hluti tókst mér að kaupa það sem mig vantaði á mettíma.  Ég held að á einhverjum tímapunkti fái ég mér svona "personal shopper" en þangað til ég hef efni á því verð ég að ganga í verkið sjálf eins og hvert annað skítverk.  Þetta þýðir það hins vegar að nú þarf ég líklega ekkert að versla í nokkuð langan tíma og geymi líklega alla verslun þangað til að við Fanney förum til LONDON!!!!

Nú hvað flensuna varðar þá getið þið andað léttar, ég virðist vera að vinna þann slag.  Tel alllíklegt að umtalsverð reynsla mín í samskiptum við hrokafullan karlpening og aðra óværu, hafi komið þar að góðum notum. 

Nú annars þá var Noregsferðin góð eins og áður sagði.  Fullt af kúm, heimsóknum á ýmsa staði, góðum mat og víni.  Góði maturinn var þó ekki norskur en hin hefðbundni norski matur sem boðið var upp á var langt frá því að vera nokkuð góður.  Rommegröd og lefsur eða með öðrum orðum, heitur sýrður rjómi og flatbrauð með smjörlíki og kanilsykri.  Delish...... eða hvað.

Hreindýrakjötið var þó frábært. 

En þar sem andleysið hrjáir mig um þessar mundir og ég sé fram á að þessi færsla er að verða ein sú allra leiðinlegasta sem boðið hefur verið upp á hér í háa herrans tíð.  Því held ég að ég láti þessu lokið að sinni svo færslan varð ekki eins ýtarleg og áætlað var í upphafi.  Hugsanlega kemur andinn yfir mig einn af þessum dögum.

Þar til síðar

GEH


Þetta er ein af þessum færslum sem ég nenni ekki að upphugsa góða fyrirsögn á.

Jæja þá er maður komin aftur eftir langan og strangan túr.  Punkturinn var settur yfir i-ið þegar þurfti tvær tilraunir til að lenda í Keflavík.  Helv#&&## rokrassgat alltaf hreint.  Ferðasagan kemur síðar ef ég dett í gírinn en það verður nú að segjast að eftir 4 daga af umræðum um nautgripi og pólitík var ekki laust við að að mér væri farið að sækja örlítið eirðarleysi og löngun til að tala um eitthvað annað, næstum því hvað sem er annað.  

Átti góða daga hjá mæðgunum í Oslo.  Ingunn gerðist shopping/tour guide og við Sigga kíktum út á lífið.  Kærar þakkir fyrir skemmtilega helgi mæðgur. 

Annars er kvefið svona heldur á undanhaldi.  Held ég geri aðra tilraun með kjúklingasúpuna í kvöld.   


Vel vopnum búin

Ég fór í verslunarleiðangur í Borgarnes, nú skyldi sko reka út óværuna.  Leiðin lá fyrst í Bónus þar sem sítróna, hunang, chilli, hvítlaukur, kjúklingur og te var tínt í körfu.   Næst var það apotekið þar sem viský-röddin bað um verkjatöflur, hálstöflur, hóstasaft og nefúða, eða allan pakkann eins og afgreiðslukonan sagði.  Að lokum var Ríkið tæklað þar sem fleygur af viský ásamt einhverju smáræði öðru var sett í poka.  Nú verður þetta helvíti tæklað með öllum mögulegum ráðum.   Leið strax betur bara eftir að vera búin að kaupa inn vopnin.  Á nú fullbúið vopnabúr.  Nú mallar kjúklingasúpa a la Valur á hellunni og ég komin með hunangs og viský-blandað te í glas meðan ég bíð.

 

Yfir og út

General Gunnfríður

 


Tálkvendi í mórauðri lopapeysu

Ég hef fengið til tímabundnar notkunar eina af þessum svokölluðu hásu kynæsandi röddum.  Hvað það er sem er svona kynæsandi við konur með hálsbólgu og skil ég ekki en hef ákveðið að vera ekki að velta mér upp úr því heldur taka fegins hendi því sem ég get fengið.  Nú vantar mig bara svarta kokteildressið, háa hanska, 11 cm pinnahæla, gerviaugnhár og munnstykki til að fullkomna gervi tálkvendisins.  Það gæti reyndar verið að hóstaköst og nefrennsli settu smávægilegt strik í reikninginn hvað gervið varðar og líklega er lítil von um bata ef ég fer að spássera um í kokteildressinu í þessu veðurfari. 
Ég hugsa að ég taki því frekar ráði frænda og fjárfesti í rótsterku áfengi.   Skelli mér svo í mórauða lopapeysu, ullarsokka og gúmmískó og taki svo nokkra létta slagara og smalavísur þegar komið er smá borð á flöskuna.  Þá get ég líka farið að telja sjálfri mér og öðrum trú um að röddin sé einfaldlega viskí-rödd sem eigi sér fullkomlega eðlilegar skýringar.

 

20344      aStekkjastaur%5B1%5D


Allt hefur sínar skýringar

Það hlaut að vera ástæða fyrir þessu andleysi í gær, enda kom það á daginn.  KVEF!!!!!!!!!!!

Helvítis KVEF!!!!

En góð fréttirnar eru að andleysið og leiðinn eru horfin að mestu þó líkamleg heilsa sé ekki upp á marga fiska í dag.

O-jæja, þetta lagast

Kveðja af eyrinni

GEH

P.S ég missti algerlega af þessari íkveikju þarna um daginn, svo spennustig Hvanneyrar hefur ekki aukist í mínum augum


"Andvarp"

Hvanneyri er ekki staðurinn til að búa á þegar maður þarf á upplyftingu að halda og langar að gera eitthvað skemmtilegt. 

Far from it

Held að það sé best að skríða undir sæng og breiða upp fyrir haus.

 


Hrúturinn Hreinn

Eins og þið sjáið þá hefi ég breytt um útlit, fór í "make-over" ef maður má sletta aðeins.  Varð að breyta til á einhverjum vígstöðvum og þetta var fljótlegast.  Aðrar drastískari breytingar krefjast aðeins meiri íhugunar.  Svo nú er ég að íhuga, alveg á milljón.   Skellti mér meira að segja í slökunar og íhugunarbað áðan, sem var svo funheitt að man sundlaði þegar staðið var upp.  Fékk nokkrar brilljant hugmyndir þó.

Annars virðast áætlanir um fleiri utanlandsferðir þetta árið að ganga eftir, enda er ég handhafi glænýs vegabréfs sem skartar einni af þessum líkhúsmyndum eða fangamyndum.  Fer til Noregs eftir viku,  vinnuferð að vísu en ætla að lita við hjá Siggu í Osló á heimleiðinni.  Við Fanney erum á fullu að plana Londonferðina okkar í lok apríl og misstum okkur aðeins í on-line shopping á leikhúsmiðum í gær.  Það verður hrein skemmtiferð.  Nú svo datt okkur Elsu í hug, yfir glasi af hvítvíni, að það væri nú alveg tilvalið að við skelltum okkur saman til útlanda, svo að ef ég þekki okkur rétt þá látum við það verða að veruleika.  Grin

Svo grand plön eru komin af stað, það er nefnilega svo margt sem maður á eftir að gera eins og ég nefndi einhvern tíman við einhvern.  Svarið sem ég fékk var reyndar að það væri svo margt sem maður ætti aldrei eftir að gera.  Svoleiðis nenni ég ekki að hlusta á, enga neikvæða strauma takk!!!!!  Heldur hefst maður handa við að láta draumana rætast ekki satt???  Svo stóð það líka í stjörnuspánni minni í dag.

LjónLjón: Það er fólk að hitta, staður til að fara á og hlutir til að kaupa. Einbeittu þér að fólkinu og stöðunum svo öll kaup virðist óþörf.

Annars er ég að hugsa um að fara að skella poppinu yfir enda styttist í Forbrydelsen.  Það má nú segja ýmislegt um Dani en þeir kunna svo sannarlega að búa til sjónvarpsþætti.   Tvímælalaust eitt það besta sem RÚV býður upp á um þessar mundir.  Deilir toppsætinu með Hrútnum Hreini eða Shaun the sheep eins og hann nefnist á frummálinu.

Þar til síðar

GEH


Heilsurækt á öllum tímum sólarhringsins

Ég vildi bara tilkynna ykkur að ég er nýbúin að stunda mjög intensíva heilsurækt í u.þ.b 4 tíma.  Drakk hvítvín í miklu hófi (sbr. frétt um hollustu hóflegrar víndrykkju) og stundaði miklar æfingar á kjálkavöðvum, labbaði líka bæði til Elsu og aftur heim sem eru a.m.k 200 metrar alls.    Æfði síðan heilabúið með því að reikna út hvað þetta bætti mörgum árum við líf mitt.  Mér telst til að þetta verði um 1,19456875565 ár sem er ekki svo lítið afrek fyrir eina kvöldstund (eða 4,5 ef allt er talið)

Góða nótt

GEH


"Geisp"

Prófyfirseta er án efa eitt af heimsins leiðinlegustu störfum.  Eins og mér fannst nú ágætt að taka próf þá finnst mér jafn leiðinlegt að sitja yfir í prófi.  Maður hefur einhvernvegin ekkert við að vera.  Þögnin verður alveg sérdeilis þrúgandi og leiðinleg og hvert einasta smá hljóð verður að glymjandi hávaða.  Til dæmis hljóðið í lyklaborðinu hjá mér akkúrat núna hljómar eins og flugeldasýning meðan suðið úr flúorljósunum og tölvunni skapa einhverskonar glymjandi frumskógarstemningu. 

Annars er víst komin föstudagur - ja hérna hér, hvað þeir koma manni alltaf að óvörum þessir föstudagar, sem hafa einhverja hluta vegna breyst úr merki um komandi helgi, í áminningu um allt það sem ekki náðist að klára í vikunni. 

Annars náði ég merkum áfanga þessa vikuna.  Komst í Næturvaktina hjá Kollu á miðvikudagskvöldið og horfði þar á alla þættina í einum rykk, gat bara ekki hætt að horfa.  Hrein snilld þetta

Góða helgi

GEH

 

 


Næsta síða »

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 400

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband