Þolinmæði þrautir vinnur allar - eða hvað????

O jæja, ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að slá til með að opna rauðvínsflöskuna eða ekki.  Hvort ég eigi að nenna að fara að hlaupa aðeins eða ekki.  Hvort ég eigi að nenna að vinna í kvöld eða ekki.  Hvort ég eigi kannski bara að glápa á imbann eða ekki. 

Kannski ég geri þetta bara allt saman.  Fari og hlaupi - opni síðan rauðvínið og taki eins og eitt glas yfir tölvunni OG hafi opið fyrir sjónvarpið á meðan.  Ég er nefnilega kona og get gert alla þessa hluti í einu og meira til Cool.  

Ég er líka ákaflega hógvær eins og allir vita

Já ég er hlaðin góðum kostum - multifunctional eins og sagt er á erlendum tungumálum.  En það eru nú flestar konur.  

Því miður er þolinmæði ekki einn af þessum góðu kostum.  Hana hef ég því miður af skornum skammti og  það litla sem ég átti notaði ég upp til agna í dag.  Morgundagurinn er því fyrirkvíðanlegur þar sem ég geri ráð fyrir að þá gæti þolinmæði gæti komið sér ákaflega vel Frown

yfir og út af eyrinni

GEH 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Uss það borgar sig ekkert að kvíða fyrir .....er alveg hætt að eyða orku í að kvíða fyrir hlutum ...annaðhvort ganga þeir eða ganga ekki...og ekkert við þvi að gera. Ef þeir ganga þá er allt í góðu ...ef ekki þá reynir maður bara aftur...

Sigga frænka (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 22:10

2 identicon

Einu sinni þekkti ég kall sem hafði verið nokkrar vikur í Danaveldi á  yngri árum og talaði eftir það um námsár sín í  Danmörku, með dönskum hreim ef hann mundi eftir því.  Hann átti það til að ergja sig út af smámunum og sagði þá gjarna "Tolinmædi min er á trotum".  Mér finnst þetta enn fyndið, og  stundum er mér nóg að segja þetta upphátt við sjálfa mig ef mín "tolinmædi er á trotum". Þú ættir að prófa. aG 

aG (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 11:33

3 identicon

hæja, nú fer að styttast.... Hafsteinn er að fara út eftir tæpa viku eða á miðvikud. 12.03, ætlar að drífa sig á leik. Heyrumst síðar.

Fanney

Fanney (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 439

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband