9.10.2008 | 20:31
Svona til að summera upp ástandið þá...
.... er Bónus farin að auglýsa íslenskar landbúnaðarvörur
.... þurfum við að treysta á Yoko Ono til að útvega okkur gjaldeyri
.... eru Rússar nú orðnir besti vinur aðal
.... er Guðni hættur að rugla á opinberum vettvangi
.... hefur ekki heyrst múkk í Steingrími J. í nokkra daga
Ég held að það hljóti að vera farið að kólna ískyggilega hjá kölska gamla núna
og svo við höldum nú áfram þá....
.... eigum við seðlabankastjóra sem veit ekki hvenær honum er hollast að þegja
.... eigum við fjármálaráðherra sem kann ekki ensku
.... erum við búin að skuldsetja okkur út í hafsauga
.... þurfum við líklega að dusta rykið af gömlu togvíraklippunum sem reyndust svo vel á Tjallan hér í denn
.... er bönkunum nú stjórnað af fólkinu sem ekki gat haft eftirlit með þeim
.... verðum við líklega að treysta á það að sauðkindin haldi í okkur lífinu eins og í gamla daga
Annars sagði Geir brandara í fréttunum áðan, gott að hann heldur húmornum kallinn. Ég get ekki sagt að ég öfundi hann af djobbinu akkúrat núna, sérstaklega með alla þessa snillinga í kringum sig. Verð að vera ósammála Mæju frænku með Davíð, ég get ekki sagt að mér hafi liðið neitt betur eftir að hafa hlustað á hann hér um kvöldið.
Svo í lokin þá er gott að summera upp þeim hlutum sem maður getur verið þakklátur fyrir akkúrat núna
að skulda ekkert nema námslán sem eru sko alveg 100% í verðlausum íslenskum krónum
að eiga tvær kindur sem sjá mér fyrir kjöti í vetur
að eiga tvö hross sem hægt er að grípa til í yfirvofandi bensínskorti
að hafa vera fædd og uppalin í sveit og kunna að lifa utan malbiks og án internets.
að hafa vinnu
að hafa ekki sett spariféð í verðbréfasjóði
og svo mætti lengi telja.
jamm það er sko alltaf hægt að finna eitthvað til að gleðjast yfir
Pollyana segir yfir og út
Tenglar
Hin mjög svo ört vaxandi barnahópur
Fjölskylda sem stækkar með veldisvexti
Aðrir ágætir
Nokkrar síður vina og kunningja - Aðallega Hvanneyringa
- Sigga Dóra
- Vigdís Garðars
- Kolla-n
- Sveitalubbinn úr Húnavatnssýslunni
- Larfurinn hann Óðinn
- Jón Gunnar
Fjölskyldubloggarar
Bloggsíður hina ýmsustu fjölskyldumeðlima
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2011
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Júlí 2009
- Mars 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Algjör snilld Gunnfríður! Verð að fá að vitna í þetta heimasíðunni minni! Þú ert bara frábær!
Kær sveitakveðja, Vigdís. :)
Vigdís (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 11:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.