Aftur til fortíðar

Óvænt atvik geta stundum gert mann svo glaðan.   Fékk póst frá Mat í dag, hef ekki heyrt frá honum í meira en 2 ár, enda er ég ekki duglegasta manneskja í heimi að halda sambandi við gamla félaga.  Það er því gaman er þeir dúkka svona óvænt upp sérstaklega þegar það er einhver af þessum frábærlega skemmtilegu.  Mat er nefnilega hann Matthieu, hin frábæri Fransmaður sem bjó með mér, Jose og Paolo á Nyvej.  Snillingur sem var alltaf í góðu skapi, elskaði mat og talaði bæði hátt og mikið.  

Í tilefni þess set ég hér eina af okkur sambýlingunum 4 og Georgio sem var nú eiginlega orðin eins og einn af mublunum. 

IMG_0729

Frá vinsti:  Georgio Sikileyingur og snilldar kokkur reyndar, Jose portúgalski dýralæknirinn sem gekk Paolo í föðurstað, hin mest karlremba en gat eldað dýrindis dýrindis saltfisk, Matthieu fransmaðurinn frábæri og síðast en ekki síst Paolo sem stóð undir öllum þeim steríotýpuhugmyndum sem menn hafa gjarnan um ítalska karlmenn;  gat hvorki fætt sig né klætt, fékk mat sendan að heiman frá mömmu (frábærlega góðan mat)og var latari og kærulausari en andskotin sjálfur.  Paolo var algerlega óhæfur til allra verka nema eins og það var að opna vínið.  Það gerði hann snilldarvel

Yfir og út af Eyrinni

GEH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já það er alltaf gamann að heyra í gömlum félögum því það vekur alltaf upp svo góðar minningar hjá manni ;)

hemmi (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 23:10

2 identicon

Maður öfundar þig nú bara..ekkert smá cool at búa bæði með Frakka og Ítala og það í einu!!!  Mér sýnist þú nú bara vera eins og Drottningin af Saaba þarna innan um hestastóðið (já..nú er ég farin að slá um mig á sveita-fræðimáli).  Takk fyrir frábæra heimsókn.  Er ekki enn búin að búa um þig, þannig að þú getur slengt þér á sófann aftur ....sem fyrst.

Kolla (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 424

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband