22.2.2008 | 17:48
Hin góða og glaða lund
Ég sé það núna hvað ég er búin að vera leiðinlegur bloggari síðastliðna daga og kannski vikur. Upp úr mér vellur ekkert annað en tómt raus. Ég óttast það mest að Óðinn hafi rétt fyrir sér og að ég sé að breytast í nöldrandi kellingu. Það er ákaflega slæmt, því mig minnir að ég hafi verið búin að semja við áðurnefndan Óðin um að gera mér þann greiða að slá mig af ef þetta kæmi einhvern tíman fyrir. Ég verð því að taka mér tak og hætta þessu helv##%$# nöldri. Með þessu áframhaldi verð ég gömul fyrir aldur fram og öll markmið, um að vera amk. jafn fersk og Tina Turner þegar ég næ sextugsaldrinum, falla um sjálft sig. Spurning um að detta í það bara, og sjá hvað gerist í framhaldinu!!!!!!!!!!
gulli tel ég betra.
Vertu alla ævistund
aðeins 19 vetra.
Eigið nú gott og gleðilegt föstudagskvöld
GEH
Tenglar
Hin mjög svo ört vaxandi barnahópur
Fjölskylda sem stækkar með veldisvexti
Aðrir ágætir
Nokkrar síður vina og kunningja - Aðallega Hvanneyringa
- Sigga Dóra
- Vigdís Garðars
- Kolla-n
- Sveitalubbinn úr Húnavatnssýslunni
- Larfurinn hann Óðinn
- Jón Gunnar
Fjölskyldubloggarar
Bloggsíður hina ýmsustu fjölskyldumeðlima
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2011
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Júlí 2009
- Mars 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já frænka góð. Þegar pirringur og óánægja tekur mann taki er oftast gott að skoða sjálfan sig og athuga hvort það sem er að angra mann sé virkilega þess virði að láta angra sig og eyðileggja þar með annars ágætan dag eða daga. Ég nenni sjaldnast að láta hluti stressa mig .....ef ég næ ekki að gera það sem ég þarf að gera, þá er það bara svoleiðis....og ekkert við því að gera....ekkert stress getur komið mér að gagni í því að koma þeim hlutum af sem ég þarf að koma af.
Í annan stað, eins og hann Jón Baldvin segir...getur maður bara ekki látið pirringinn sleppa og þá er bara ágætt að láta hann fá útrás á því eða þeim sem er að pirra mann....stundum verður maður bara að fá að gjósa í friði!!
Vorkveðjur frá Oslo
Sigga frænka (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 18:30
Mikið rétt kæra frænka, og í tilefni þess að vera búin að ná áttum á ný, með hjálp góðra manna, reif ég mig upp úr eymdinni, þreif íbúðina mína, þvoði þvott og fór svo og hljóp úr mér restina af fýlunni . Það dugar vissulega oft að gjósa smávegis en stundum þarf að beita öðrum ráðum. Sit nú nýsturtuð og glansandi, í hreinni íbúð, og líður eins og nýslegnum túskildingi.
Tina er aftur komin í sjónmál
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, 22.2.2008 kl. 20:15
Bara að kvitta, ég hef nú alltaf gaman af því að lesa þetta svartsýnisraus í þér...... ;)
Guðlaug Ásta (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.