17.12.2007 | 18:17
Ein um boltann svona upp á gamla góða daga
Það er langt síðan ég hef skrifað um fótbolta. Enda hef ég því miður lítinn tíma til að fylgjast með fótbolta nema svona á síðum veraldarvefsins. Ég hef þó hugsað mér að horfa á fótbolta um jólin, og drekka bjór með. Einhverra hluta vegna þá er þetta órjúfanleg heild sem á líklega rætur sínar að rekja til þeirra tíma er við Sissi og Valur örkuðum stundum niður á Old English pub eða hinn pöbbinn(sem ég man ekki hvað heitir) á Gamle Kongevej til að horfa á bolta og drekka bjór. Óðinn slæddist oftast með en það var nú aðallega til að drekka bjór ekki til að horfa á boltann ef mig minnir rétt. Já það var í þá gömlu góðu daga. Þeir voru (og eru líklega enn) Púllarar (nema Óðinn sem er bara bjórsvelgur). Einhverra hluta vegna þá horfi ég oftar á bolta með Púllurum en öðrum, enda oft auðvelt að finna til samúðar með þeim. Undantekningin er Hákon bróðir sem er "dedicated" United maður. Það er ekki eins auðvelt að finna til samúðar með þeim, enda tyggjóskrímslið og allt hans lið ættað þráðbeint frá Helvíti.
Ástæðan fyrir þessari fótboltafærslu er annars vegar sú að mínir menn stóðu sig með miklum sóma þessa helgina og tróna bíspertir á toppnum. Hins vegar er mig farið að langa að leggjast upp í sófa með bjór og horfa á bolta. Húrra fyrir Arsenal !!!!!!!
Tenglar
Hin mjög svo ört vaxandi barnahópur
Fjölskylda sem stækkar með veldisvexti
Aðrir ágætir
Nokkrar síður vina og kunningja - Aðallega Hvanneyringa
- Sigga Dóra
- Vigdís Garðars
- Kolla-n
- Sveitalubbinn úr Húnavatnssýslunni
- Larfurinn hann Óðinn
- Jón Gunnar
Fjölskyldubloggarar
Bloggsíður hina ýmsustu fjölskyldumeðlima
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2011
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Júlí 2009
- Mars 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bara að kasta á þig kveðju, alltaf gaman að lesa hugsanaganginn hjá þér. Við förum nú aldrei yfir um eða komum að handann, en við förum alltaf suður (til Rvk sem sé) þó að það sé nottlega í hávestur úr minni sveit skrítin svona orðatiltæki. Bestu kveðjur úr Suðursveitinni
Þórey (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 11:06
heyr heyr fyrir þér og öðrum Arsenal mönnum, Kallinn minn er lika mjög sáttur eftir helgina.
Fanney frænka (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 14:16
Gunnfríður!! Ertu á sterum? Ertu búin að fara í hormónatékk? ...... er táfýla af sokkunum þínum? Er algjörlega orðlaus!!!
Kolla (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 16:43
Kolla mín, ég er ákaflega margþættur persónuleiki enda oft gott að geta svissað yfir þegar við á. Þessi fótbolta-bjórdrykkjuhlið er reynda fremur ríkjandi hjá mér en hefur vegna anna ekki fengið að brjótast fram að ráði nú um nokkurt skeið. Það stendur nú vonandi til bóta muhhhahahaha.
P.s ég þoli ekki táfýlusokka svo þetta er nú ekki syndróm á hæsta stigi en hef reynda oft fengið að heyra að ég hefði líklega betur fæðst sem karlmaður
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, 18.12.2007 kl. 17:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.