Hús gleðinar

Svona til að kóróna hin frábæra gærdag vaknaði ég klukkan tvö í nótt.  PARTÝ!!!!!! á Hlégarði,  aðfaranótt þriðjudags.  Ég hugsaði margt ljótt þar sem ég lá undir hlýrri sænginni og íhugaði hvort ég ætti að nenna að stökkva framúr til að fara fram og skammast.  Ákvað að bíða átekta, hugsanlega gæti ég sofnað aftur.  Klukkutíma seinna var gleðin ennþá í fullum gangi og menn augljóslega komnir á það sig er þeir álíta sig heimsins bestu söngmenn.  Það er líklega best að taka það fram að í nótt voru heimsins bestu söngmenn EKKI staddir á Hlégarði.  Langt því frá!!!!

Á þeim tímapunkti var ég hætt að hugsa margt ljót og farin að segja margt ljótt.  Geðvonskan varð ,að lokum, lönguninni til að kúra undir hlýrri sænginni yfirsterkari.  Ég geystist því á fætur og stormaði fram í græna náttsloppnum mínum, mjög sennilega ekki sérlega frýnileg, úfin og geðvond.  Lét nokkur vel valin orð falla í reykmettuðu eldhúsi sambýlisins.  Skellti svo á eftir mér hurðinni og strunsaði aftur inn í íbúðina mína.  Eitthvað sljákkaði í liðinu en ég var hins vegar komin í hvílíkan ham að ég sofnaði ekki fyrr en undir morgun, svaf yfir mig og mætti hálftíma of seint í vinnuna Angry

Ég hygg því á hefndir við tækifæri Devil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hugsaðu bara til yndislega lognsins í Oslo þegar vindarnir þjóta á eyrinni.... Hér er vor í lofti ...svo er ekkert að því að láta fólk heyra það þegar það á það skilið .... huffff hvað það eru mörg ÞAÐ í þessari færslu!!

Sigga frænka (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 23:56

2 identicon

Í ljósi tveggja síðustu færsla þá álykta ég að þú sért að breytast í grumpy kellingu, og þess stutt að bíða að þú farir að hringja inn í útvarpsþætti og nöldra.

Óðinn (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 424

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband