18.8.2008 | 00:12
Haustkvöld
Það er pottþétt komið haust, úti er kolniðamyrkur. Og hvað gerir maður sér svo til dundurs á Hvanneyri á síðsumarskvöldi. Jú maður vinnur. Það er algerlega útilokað að nokkur maður geti lifað meira spennandi líf en ég geri. Enda bý ég á Hvanneyri, nafla alheimsins þar sem engin dagur er frábrugðin öðrum. Náði að segja heil 5 eða 6 orð við aðra manneskju í dag. Sú manneskja var Keli sem var einmitt að sækja kýrnar þegar við Skjóna komum úr reiðtúr. Hann var líka einasta manneskjan sem ég sá í návígi í dag. Það var einskær heppni og tilviljun, held ég.
Til þess að varna því að varirnar grói saman eða að ég gleymi hvernig á að hreyfa þær til að mynda hljóð, þá spjalla ég við hryssurnar mínar. Litla Jörp er orðin svo vön þessu að hún hlýðir röddinni minni jafn vel og taumunum. Skjóna er ekki alveg búin að fatta þetta eins vel, enda hef ég talað við hana í mun styttri tíma. Þetta er þó fljót að læra blessunin og á eftir að finna út úr þessu.
En nú er klukkan orðin miðnætti og því hef ég um tvennt að velja:
A: Fara að sofa
B: Bíða eftir handboltaleiknum
En í öllu falli þá ætla ég að slökkva á tölvunni
GEH
Tenglar
Hin mjög svo ört vaxandi barnahópur
Fjölskylda sem stækkar með veldisvexti
Aðrir ágætir
Nokkrar síður vina og kunningja - Aðallega Hvanneyringa
- Sigga Dóra
- Vigdís Garðars
- Kolla-n
- Sveitalubbinn úr Húnavatnssýslunni
- Larfurinn hann Óðinn
- Jón Gunnar
Fjölskyldubloggarar
Bloggsíður hina ýmsustu fjölskyldumeðlima
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2011
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Júlí 2009
- Mars 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú einhverfa barn! Hvernig væri að kíkja í geðlægðardalinn í borginni og ath hvort raddböndin virka. Verð búin að kaupa koníakið
Kolla (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 10:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.