1.2.2008 | 01:21
The simple life
Ég var sest hérna í góðum húmör eftir rauðvínsdrykkju með Elsu, staðráðin í að skrifa eitthvað ódauðlegt. Ein eins og allir góðir artistar kannast við þá yfirgefur skáldagyðjan þá oft þegar minnst varir. Ég er hins vegar ennþá í góðum húmör, búin að tryggja mér miða á Þorrablót og sé ástæðu til þess að deila því með ykkur, hvort sem ykkur líkar betur eða verr. Það er meira að segja mögulegt að það verði skemmtilegt Þorrablót sem ég fer á þetta árið.
Ég er nú samt að hugsa um að auglýsa eftir skemmtunum okkur Elsu til handa. Hvanneyri er ekki mest lifandi staðurinn. Höfum gert tvær heiðarlegar tilraunir til að fara á barinn. Í annað skiptið voru þar fyrir 5 einstaklingar og í hitt skiptið 3 . Okkur er sárlega farið að langa á almennilegt skrall. Einhver púki farin að láta kræla á sér
Annars nálgast helgin eins og óð fluga og spurning hvort við gerum eina tilraun enn við barinn. Dagskrá helgarinnar er reyndar að verða umtalsvert löng því ásamt stórum pappírshrúgum sem bíða við tölvuna verður að viðurkennast að bæði ég og íbúðin eru komin yfir eindaga hvað varðar þrif (íbúðin) og "personal grooming" (ég). Það er því líklegt að gólftuskan verði tekin til handagangs og látið renna í gott freyðibað eftir að íbúðin hefur fengið yfirhalningu. Leggjast í bleyti við kertaljós og með eitthvað gott í glasi, skríða svo upp í tandurhreint og ný-umskipt rúm. Svona geta einfaldir hlutir gefið lífinu gildi .
Góða nótt af eyrinni
GEH
Tenglar
Hin mjög svo ört vaxandi barnahópur
Fjölskylda sem stækkar með veldisvexti
Aðrir ágætir
Nokkrar síður vina og kunningja - Aðallega Hvanneyringa
- Sigga Dóra
- Vigdís Garðars
- Kolla-n
- Sveitalubbinn úr Húnavatnssýslunni
- Larfurinn hann Óðinn
- Jón Gunnar
Fjölskyldubloggarar
Bloggsíður hina ýmsustu fjölskyldumeðlima
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2011
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Júlí 2009
- Mars 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hljómar dásamlega...langar líka í spegilgljáandi hús og leggi. Kveðjur úr hálffokheldu Háaleitinu.
Kolla (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 18:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.