2.2.2008 | 11:13
Á laugardegi
Ein stutt á laugardagsmorgni héðan af Eyrinni. Úti er hið besta vetrarveður -13 °C og logn. Já ég segi og skrifa LOGN!!!!!!! Maður veit varla hvaðan á sig stendur veðrið, enda stendur það ekki á mann úr neinni átt.
Nýjustu fréttir eru þær að ég er búin að fá pláss fyrir hana Yrpu mína, betur þekkta sem Litlu Jörp, og henni til fulltingis verður Bleik, bleiki fjarðarhesturinn hans Hákonar. Einhverra hluta vegna læðist að manni grunum um einhver norsk áhrif í íslenska hrossastofninum, þegar maður lítur þá hryssu augum.
Það er því ekki laust við að nokkrar tilhlökkunar gæti vegna fyrirsjáanlegra útreiðatúra, sérstaklega þegar Eyrin býður upp á svona frábært útreiðaveður eins og í dag.
Annars stendur nú yfir stórhreingerning á Hvanneyrargötunni enda ekki vanþörf á eftir útlegð og vinnutörn síðustu viku.
Læt fylgja hérna eins og eina mynd frá Noregi. Þar var alltaf LOGN og aldeilis frábært útreiðaveður
Þar til síðar
GEH
Tenglar
Hin mjög svo ört vaxandi barnahópur
Fjölskylda sem stækkar með veldisvexti
Aðrir ágætir
Nokkrar síður vina og kunningja - Aðallega Hvanneyringa
- Sigga Dóra
- Vigdís Garðars
- Kolla-n
- Sveitalubbinn úr Húnavatnssýslunni
- Larfurinn hann Óðinn
- Jón Gunnar
Fjölskyldubloggarar
Bloggsíður hina ýmsustu fjölskyldumeðlima
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2011
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Júlí 2009
- Mars 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hæhæ hér í firðinum fagra er allt að snjóa í kaf...... en sem betur fer er aðeins að minnka snjókomuna nuna og kemst ég þá væntanlega á bílnum mínum í sveitina okkar góðu á morgun ;). en annars bara að skilja eftir mig spor
hafðu það gott ;)
Guðlaug Sigríður (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 20:37
Var að skralla yfir bloggið þitt og var stólpaundrandi yfir vanþóknun þinni á norskum mat. Veit hreinlega ekkert betra en römmegröt og lefsur. Hátíðarmatur. Ekki gleyma buffi ala linström og rísgröt með saft....jammíí....í desert er svo kaffi og stratos súkkulaði....Ha det bra!!
Kata kollusystir (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 18:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.