Viku seinna....

.... er komin tími á nýja færslu.  Sit hér á Eyrinni meðan enn eitt ofsaveðrið geisar úti.  Var reyndar búin að skipuleggja norðurferð og þorrablót á Hrafnagili í kvöld en að sjálfsögðu var öllu flugi frestaði í gærkveldi  og ég því veðurteppt í höfuðborginni ásamt Þorbjörgu.  Ég ákvað því að slá striki yfir þorrablótið og fara hvergi þar sem verkefnabunkinn hefur ekki minnkað að neinu ráði og taldi ég praktískari not fyrir tíman að grynnka hann í stað þess að fljúga norður í dag til þess eins að keyra til baka á morgun.  Norðurferðin bíður því betri tíma, þegar ég hef betri tíma

Leitaði á náðir Kollu varðandi húsaskjól í gærkveldi og tók hún vel í  það af sinni einstöku gestrisni og góðmennsku.  Takk fyrir það Kolla.  Skaust svo milli lægða upp á Hvanneyri í morgun. 

Vikan var annasöm enda Fræðaþing og regluleg óveður sem gerðu ferðir milli Hvanneyrar og Reykjavíkur nokkuð stór óvissufaktor.  Því varð Hótel Saga að koma til bjargar.  Það má því segja að ég hafi búið i ferðatösku frá því á þriðjudagskvöld.  Til allra guðslukku gáfu Þorbjörg og Hákon mér ágætis ferðatösku í jólagjöf sem nú þegar hefur margsannað ágæti sitt.

Góða helgi og góða skemmtun allir þeir sem ætla á þorrablót í kvöld en þeir ku vera fjölmargir

GEH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verði þér að góðu og vertu ávalt velkomin.  Verð nú að lofa þér að þú lendir ekki í fleiri tiltektum á næstunni (held ég) en þú gætir lent í því að elda eitthvað gott á nýju keramikhellunum mínum þegar þær komast í samband við öflugri orku en hugarorku til að hitna.  Ég hlakka mikið til.

kolla (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 22:19

2 identicon

Sæl og blessuð Gunnfríður! Skemmtilegt að rekast á þig hérna í bloggheimum ;)

Ásrún Ýr (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 424

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband