Gleði gleði

Ég sá þegar ég vaknaði í morgun að vetrinum (þurru köldu norðanrokinu) hafði verið skipt út fyrir vor (heldur hlýrra roki og rigningu).  Lovely wether Errm.  Annars hefur einhver slæmska verið að hrjá mig síðan á föstudagskvöld.  Það sem af er helgar hefur því einkennst af því að sofa mikið og vinna inn á milli.  Náði 9 tímum í nótt sem telst mikið í mínum heimi, sérstaklega þegar tekið er tillit til 10 tímana nóttina áður.   En eitthvað gagn hefur allur þessi svefn gert því ég er sæmilega spræk í dag og er meira að segja búin að hella mér upp á kaffi.

Annars þarf ég að fara að komast norður í sauðburð því rokinu og rigningunni hér fylgir alla jafna sól og sunnangola þar eða sem sagt.  Alvöru vor!!!!!

Þrátt fyrir vorveðrið hef ég ákveðið að geysast í göngutúr því ég er orðin hundleið á að hanga innan fjögurra veggja þessarar íbúðarholu minnar.  Ég á reyndar ekki regngalla því ég þrjóskast við og tel óeðlilegt að geta ekki skotist út í smá stund án regngalla þó að það rigni smá.  Regngalli séu því ónauðsynleg fjárútlát.  Vandamálið er að það rignir bara aldrei "smá" eða altsvo þá er smá rigning hér samsvarandi úrhelli á mínum uppeldisstöðvum.

Eins og þið sjáið þá er geðprýðin með eindæmum í dag enda stjórnast skap mitt mjög gjarnan að veðrinu sem útsýrir langvarandi geðvonsku og pirring. 

Yfir og út úr vorinu á eyrinni

GEH

yfir og út

GEH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er örugglega besta leiðin til að komast í beint samband við náttúruna að taka á móti nýfæddum lömbum og sjá þau komast á legg og fara seinna út í guðsgræna náttúruna og hoppa og skoppa þar.

Torfi (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband