finally gone mad

Í morgun fór ég endanlega yfirum.  Allur þessi svefn síðustu helgar hefur heldur betur ruglað mig í rýminu enda er ég alls ekki vön að sofa meira en 6-7 tíma á nóttu. 

Svo í morgun (nótt) vaknaði ég klukkan 4:30 stundvíslega.  Glaðvaknaði algerlega úthvíld og útsofin.  Uppfull af orku.  Kíkti út um gluggann og sá að sólin var að koma upp og það sem meira var að úti var logn.  Ég fékk þá snilldarhugmynd að fara út að hjóla, sem og ég gerði.  Var komin út kl 5 og hjólaði upp í Skorradal.  Frábært veður, alger friður og dásamlegur fuglasöngur.   Kom heim rúmlega 6, fór í sturtu og hitaði mér gott kaffi, tók úr þvottavélinni sem ég setti í áður en ég fór af stað, setti í nýja, vaskaði upp óhreina leirtauið í vaskinum.  Hafði tíma til að hlusta á útvarpið yfir kaffibolla númer 2, dreif mig svo í vinnuna. 

Það merkilega er að ég er ennþá uppfull af þessari orku, búin að fara á hestbak og á eldavélini mallar chilli con carne a la ég sjálf sem ég ætla nú að éta með bestu lyst áður en ég finn upp á einhverju nýju að brasa því það veit sá sem allt veit að ég er aldeilis ekki orðin syfjuð.

"I think I have finally gone mad" múhahahahah Devil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafandi borið þessa færslu saman við síðustu færslu kemst ég að þeirri niðurstöðu að þú þurfir að leita þér andlegrar lækningar.

Larfurinn (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 12:28

2 identicon

Aha.... mig vantar svona orku.  Reyndar farin að vakna á morgnana í staðinn fyrir að vera hálfsofandi fram undir hádegi.  Heyrðu, ég held að ég sé bara laus á laugardagksvöldið, ef pabbi gamli lætur sig hverfa á laugardaginn, eins og planið er í dag.  Langar mikið að fara að hitta þig. Verðum í bandi þegar líður á vikuna. 

kolla (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 21:05

3 identicon

Veistu - það er akkúrat núna hægt að fá svona vatnsheld (í alvöru) vindföt í Samkaup

Ég hef aldrei eignast slíkan búnað, fyrr en eitt sinn er ferðinni var heitið til Flateyjar - nýttist vel þar og hefur hentað annað veifið hér síðan

En maður kemst af minnsta kosti 25 ár hér án þess búnaðar

e (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
Flökkukind með meiru

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • kopar stekkur.gif
  • ...p1010033
  • Botna
  • ...p1010028
  • Blesi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 418

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband